Innlent

Alyson Bailes látin

Samúel Karl Ólason skrifar
Alyson J.K. Bailes.
Alyson J.K. Bailes. Vísir/Stefán
Alyson J.KBailesaðjúnkt við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, lést í Skotlandi þann 29. apríl síðastliðinn. Alyson starfaði í 30 ár í bresku utanríkisþjónustunni og gegndi þar fjölda trúnaðarstarfa, síðast starfi sendiherra í Helsinki.

Hún var forstöðumaður Alþjóðafriðarrannsóknastofnunarinnar (SIPRI) í Stokkhólmi á árunum 2002-2007, þegar að hún tók við starfi aðjúnkts við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Hún var einnig gestaprófessor við College of Europe í Brugge 2010-2015.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.

Afkastamikill fræðimaður

Alyson var ein af virtustu fræðimönnum á sviði varnar- og öryggismála í Evrópu, vopnaeftirlits og afvopnunar. Við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands sérhæfði hún sig í utanríkismálum Norðurlanda, Norðurslóðamálum og smáríkjafræðum.

Hún tók virkan þátt í starfi Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við HÍ og var tíma formaður stjórnar þeirra. Þá tók hún þátt í stofnun Rannsóknaseturs um Norðurslóðir innan Alþjóðamálastofnunar. Alyson var afkastamikill fræðimaður og birti árlega tugi fræðigreina auk þess sem hún ritstýrði fjölmörgum bókum og ritum.

Hún var óþreytandi við að halda fyrirlestra um alla Evrópu og veita rannsóknastofnunum, félagasamtökum og ríkjum ráðgjöf á ofangreindum sérsviðum. Alyson lagði metnað í að aðstoða nemendur sína og unga vísindamenn og veita þeim innblástur til frekara náms og starfa. Hún hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín.

Veita verðlaun í hennar nafni

Til að minnast Alyson og framlags hennar til fræðanna hafa Stjórnmálafræðideild HÍ, Alþjóðamálastofnun HÍ og breska sendiráðið í Reykjavík ákveðið að veita árlega verðlaun í hennar nafni fyrir framúrskarandi BA eða MA ritgerð á sviðum öryggismála, Norðurslóðarannsókna eða utanríkistefnu Norðurlandanna.

Alyson var fædd í Manchester í Bretlandi 6. apríl árið 1949. Hún stundaði nám við The Belvedere School í Liverpool og Somerville College í Oxford háskóla þaðan sem hún útskrifaðist með BA próf í nútímasögu með ágætiseinkunn árið 1969 og MA próf árið 1971. Alyson var gerð að heiðursfélaga við Somerville College árið 2001. Hún lætur eftir sig móður, systur og bróður í Bretlandi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×