Innlent

Alvarlegt umferðarslys á Arnarnesvegi í nótt

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Einn var í bílnum og er hann alvarlega slasaður.
Einn var í bílnum og er hann alvarlega slasaður. Vísir/pjetur
Alvarlegt umferðarslys varð á Arnarnesvegi við Reykjanesbraut um klukkan hálf 3 í nótt. Einn var í bílnum og var hann fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.

Vegfarendur tilkynntu um slysið en bíl var ekið á vegrið á brúnni yfir Reykjanesbraut og slasaðist bílstjórinn alvarlega. Beita þurfti klippum til að ná manninum úr bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×