Innlent

Alvarlega slasaður eftir umferðarslys á milli Víkur og Klausturs

Gissur Sigurðsson skrifar
Maðurinn var fluttur með þyrlu á Landspítalann.
Maðurinn var fluttur með þyrlu á Landspítalann. Vísir/Ernir
Ökumaður, sem var einn í bíl  num , slasaðist alvarlega þegar bíll hans valt út af þjóðveginum á milli Víkur og Klausturs í gærkvöldi.

Sjúkraflutningamenn og læknir mátu ástand mannsins svo að hann þyrfti 
hið  bráðasta   komast undir læknis hendur þannig að óskað var eftir að þyrla Landhelgisgæslunnar flytti hann á Landspítalann í Reykjavík.

Sjúkrabíllinn ók svo af stað til 
móts  við þyrluna, sem tók manninn um borð. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en maðurinn er ekki í lífshættu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×