Innlent

Alvarleg hætta getur skapast á Landspítalanum

Ásgeir Erlendsson skrifar
Framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum segir alvarlega hættu geta skapast á spítalanum ef loka þurfi skyndilega deildum vegna sýkinga eins og raunin var á dögunum. Plássleysið sé slíkt að erfitt yrði að bregðast við ef stórt slys skyldi bera að höndum.

Nýlega kom upp Mósasýking á einni af lyflækningadeildum Landspítalans. Sýkingin er afar erfið viðureignar og hættuleg veiku fólki. Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga, segir spítalann illa í stakk búinn til að loka deildum eins og nauðsynlegt er þegar slíkar sýkingar koma upp. Til dæmis hafi ekki verið unnt að loka umræddri deild samstundis þegar tilvikið uppgötvaðist.

„Það sem er alvarlegt við þetta mál er að ein af okkar aðal lyflækningadeildum verður óstarfhæf og það þýðir að spítalinn er sprunginn. Við höfum ekki pláss fyrir sjúklingana. Við megum ekki gleyma því að stór hluti sjúklinganna sem leita til spítalans á hverjum einasta degi leggst inn á lyflækningadeildirnar þannig að þegar ein slík deild gengur úr skaftinu vegna sýkingar af þessu tagi þá er spítalinn algjörlega sprunginn.“

Ólafur segir að atvik sem þessi geti haft alvarlegar afleiðingar.

„Það sem getur gerst á aðeins örfáum dögum við þessar aðstæður er að bráðamóttakan getur farið að teppast og af hverju er það? Jú þessir lyflæknisfræðilegu sjúklingar ef maður má leyfa sér að nota slík orð, það hefur ekki náðst að leggja þá inn og þá er erfiðara að taka á móti stórum slysum fyrir vikið. Auðvitað er þetta ákveðinn spádómur því við erum ekki í þessari stöðu í dag. Við höfum áhyggjur af þessu þegar heil deild gengur úr skaftinu. Þá er hreinlega ekki pláss á spítalanum ef stórt slys skyldi bera að höndum. Við þurfum nýtt húsnæði þar sem sýkingar eru ólíklegri en þær eru í dag og þar sem við höfum hreinlega meira pláss fyrir sjúklingana.“  






Fleiri fréttir

Sjá meira


×