Sport

Alvarez rotaði Dos Anjos

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alvarez þjarmar hér að Dos Anjos í nótt.
Alvarez þjarmar hér að Dos Anjos í nótt. vísir/getty
UFC krýndi nýjan léttvigtarmeistara í gær er Eddie Alvarez rotaði heimsmeistarann Rafael dos Anjos.

Það sem meira er að Alvarez náði að klára Dos Anjos er rúm mínúta var eftir af fyrstu lotunni.

„Rafael dos Anjos var á topp fimm á pund fyrir pund listanum og ég rotaði hann,“ sagði Alvarez með tárin í augunum.

Hann hefur lengi verið þekktur fyrir að vera neðanjarðarkóngurinn en nú er Alvarez orðinn heimsmeistari ofan jarðar líka.

Bardagakvöldið í gær var fyrsta kvöldið af þremur hjá UFC í Las Vegas þessa helgina. Í kvöld er komið að úrslitum í The Ultimate Fighter og annað kvöld er það svo UFC 200.

UFC 200 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×