Skoðun

Alþýðufylkingin valkostur í komandi kosningum

Ægir Björgvinsson skrifar
Nú er komið að kosningum og ég er búinn að finna mína hillu, svo blöskrar mér framganga ráðandi flokka og annarra sem staðið hafa að stjórnun Íslands síðustu áratugi, (og tel enga batavon hjá neinum þeirra), að ég hef tekið stöðu með Alþýðufylkingunni. Hún er afl sem er með réttláta stefnuskrá sem er miðuð við þarfir hins almenna borgara í því að sjá sér og sínum farborða.

Ég á börn og barnabörn sem eru að takast á við mjög erfiða fjárhagslega framtíð er varðar eignamyndun í íbúðahúsnæði og að takast á við heilsufarsleg vandamál. Ég tel fjögurra ára áætlun Alþýðufylkingarinnar vera plagg sem tekur á málunum eins og þau ættu að vera, þess vegna gef ég kost á mér í 3ja sæti á framboðslista í Suðvesturkjördæmi (Kraganum).

Fjögurra ára áætlun Alþýðufylkingarinnar tekur af miklum metnaði á helstu málum er varðar íslenskt samfélag og þá einstaklinga sem búa landið. Þegar við komumst til áhrifa verður neyðaráætlun virkt, þ.e. Landspítalinn fær a.m.k. einn milljarð strax, áður en byrjað verður á kerfisbreytingum, sala ríkiseigna verður stöðvuð strax og bætur öryrkja verða uppfærðar strax, þær hafa verið frystar frá hruni.

Hvað er Alþýðufylkingin? Hún er fjöldahreyfing sem berst fyrir hagsmunum alþýðunnar, en hennar hagsmunir eru grundvöllurinn að öllum okkar baráttumálum. Við tökum ekki undir áróður um að bæta megi lífskjör með auknum hagvexti, í samfélagi eins og byggst hefur upp á Íslandi fylgir auknum hagvexti jafnan aukinn ójöfnuður og skuldsetning, enda taka auðmenn sér ríflegan hagnað út úr aukinni veltu, lykilatriði er félagsvæðing innviða samfélagsins, þar sem fjármálakerfið og nauðsynleg samfélagsþjónusta við alla er í fyrirrúmi.

Í áætluninni er gerð grein fyrir helstu baráttumarkmiðum Alþýðufylkingarinnar á næstu árum, innra samhengi þeirra og samhengi þeirra við framtíðarsýn flokksins um betra samfélag. Þessi áætlun er ekki listi af loforðum heldur ábending um að ef við viljum betra þjóðfélag þar sem við erum okkar eigin gæfu smiðir, þá þurfum við að berjast fyrir því.




Skoðun

Sjá meira


×