Viðskipti innlent

Alþingi fær upplýsingar um söluna á Borgun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar
Landsbankinn sendir í dag nefndarsviði Alþingis greinargerð um sölu bankans á Borgun. Síðla árs 2014 seldi Landsbankinn liðlega 31 prósents hlut í Borgun fyrir 2,2 milljarða til stjórnenda og hóps fjárfesta. Fjármálaeftirlitið óskaði eftir gögnum frá Landsbankanum í árslok 2014 vegna sölunnar á fyrirtækinu. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum fékk Fjármálaeftirlitið umbeðin gögn og hefur ekki haft samband aftur vegna málsins. Sérstakur saksóknari hefur ekki haft afskipti af málinu. Sigurður G. Valgeirsson, upplýsingafulltrúi Fjármálaeftirlitsins, segir að stofnunin geti ekki tjáð sig um samskipti við einstaka eftirlitsskylda aðila.

Forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar eru hins vegar sammála um að málið krefjist skoðunar. „Ég vil spyrja hæstvirtan forsætisráðherra hvort hann hafi gert einhvern reka að því að afla upplýsinga um þetta mál og hvort hann sé sammála mér í því að mikilvægt sé að það verði rannsakað í þaula,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi.

Sigmundur Davíð sagðist vera sammála því að mikilvægt væri að tryggja að ríkið fengi sem mest fyrir þær eignir sem ákveðið væri að selja. Hann sagði að Borgunarmálið krefðist líka skýringa. „Niðurstaða sem er augljóst klúður. Mér skilst reyndar að bankinn ætli að eigin frumkvæði að skila þinginu greinargerð,“ sagði Sigmundur Davíð og tók fram að hann styddi þá tillögu að Alþingi stæði að rannsókn á sölunni.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra
Árni Páll sagði að það skipti máli að búa til umgjörð þar sem tryggt væri jafnræði og samkeppni um þær eigur sem ríkið lætur frá sér. Sigmundur Davíð benti á að hin síðustu ár hefði verið leitast við að skapa sem mestan aðskilnað milli stjórnmála og bankanna. „Þar af leiðandi er erfitt og jafnvel ómögulegt fyrir stjórnmálamenn að skipta sér af, jafnvel hlutum sem virðast ekki vera í lagi. Það þarf að gerast þá í gegnum þær stofnanir, það fyrirkomulag, sem komið hefur verið á til þess að fylgja slíkum ákvörðunum eftir,“ sagði Sigmundur Davíð.

Á vef Landsbankans hafa verið birtar ítarlegar upplýsingar um söluna á Borgun. Þar er fullyrt að bankinn hafi ekki haft upplýsingar um að valréttur vegna hugsanlegrar yfirtöku Visa Inc. á Visa Europe myndi leiða til greiðslna til Borgunar. Þessar upplýsingar hafi ekki heldur komið fram í tengslum við önnur viðskipti með hluti í Borgun á árunum 2009-2014. Í viðræðum við stjórnendur Borgunar hafi ekki komið fram neinar upplýsingar um að Borgun hefði rétt á hlutdeild í verðmætum valréttarins, hvað þá að vegna hans hefðu skapast verðmæti hjá Borgun. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×