Formúla 1

Alonso verður áfram hjá Ferrari

Alonso gefur hér eiginhandaráritanir.
Alonso gefur hér eiginhandaráritanir. vísir/getty
Þrátt fyrir mikinn áhuga frá McLaren þá hefur Fernando Alonso ákveðið að keyra áfram fyrir Ferrari.

Tíðindin koma nokkuð á óvart enda hefur ekki gengið sem skildi hjá Ferrari-liðinu síðustu ár.

"Ég hef ekki í hyggju að yfirgefa Ferrari. Ég er enn ákveðinn í að ná árangri hérna og klára það starf sem við hófum fyrir nokkrum árum síðan," sagði Alonso.

"Það hefur mikið verið slúðrað um mína framtíð en ég hef sjálfur ekki sagt neitt. Það er samt heiður þegar bestu liðin hafa áhuga á manni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×