Enski boltinn

Alonso kominn til Chelsea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alonso fagnar í leik með Fiorentina.
Alonso fagnar í leik með Fiorentina. vísir/getty
Chelsea er búið að kaupa varnarmann en það er ekki David Luiz.

Fiorentina hefur nefnilega staðfest að félagið sé búið að selja Marcos Alonso til Chelsea.

Alsono er 25 ára gamall Spánverji og alinn upp hjá Real Madrid. Hann spilaði þó aðeins einn leik fyrir aðallið félagsins áður en hann fór til Bolton árið 2010.

Þremur árum síðar var hann svo kominn til Fiorentina. Hann spilaði svo hálft tímabil með Sunderland árið 2014.

Alonso á enga A-landsleiki að baki en spilaði með U-19 ára liði Spánar á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×