Sport

Almenningur fer í mál við Manny

Manny Pacquaio.
Manny Pacquaio. vísir/getty
Það gæti verið nóg að gera í réttarsalnum hjá boxaranum Manny Pacquaio næstu mánuði.

Áhorfendur eru á því að bardagi hans og Floyd Mayweather hafi verið eitt stórt svindl og þeir vilja peningana sína til baka. Reyndar gott betur en það.

Pacquaio greindi ekki frá því fyrir bardagann að hann væri meiddur á öxl og hann verður væntanlega kærður líka fyrir að hafa ekki látið vita af því. Fyrir það gæti hann átt yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi.

Að minnsta kostir 32 eru búnir að kæra Pacquaio. Bæði fólk sem mætti á bardagann og veðjaði á hann.

Dómari mun skoða þessar ákærur fljótlega og er líklegt að þær verði allar teknar fyrir í einu. Þeir sem kæra vilja fá 666 milljónir króna í skaðabætur.

Bæði Pacquaio og Mayweather höluðu inn milljörðum á bardaganum.

Box

Tengdar fréttir

Ég vann bardagann

Manny Pacquaio er enn á því að dómararnir í bardaganum gegn Floyd Mayweather hafi verið á villigötum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×