Innlent

Almenningur er boðinn velkominn á Austurvöll við embættistöku nýs forseta

Atli Ísleifsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson.
Guðni Th. Jóhannesson. Vísir/Ernir
Athöfn vegna embættistöku forseta Íslands fer fram í Dómkirkjunni og Alþingishúsinu mánudaginn 1. ágúst og hefst dagskrá klukkan 15.30.

Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Ríkisútvarpið verði með beina útvarpssendingu frá athöfninni í kirkju og beina sjónvarpsútsendingu frá athöfninni í þinghúsi.

„Útsendingunni verður varpað út á Austurvöll og verður sérstakur skjár settur upp svo þeir sem þar eru staddir geti fylgst með því sem fram fer.

Almenningur er boðinn velkominn á Austurvöll til að fylgjast með athöfninni og fagna nýjum forseta,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×