Skoðun

Almenningssamgöngur fyrir alla?

Helga Þórðardóttir skrifar

Ég er mjög hlynnt almenningssamgöngum en samband mitt við strætó hefur gengið mjög brösugt. Oft og iðulega þegar ég hef ætlað mér að taka strætó þá hefur orðið seinkun eða ferðin jafnvel fallið niður vegna vélarbilunar. Þetta er ekki nein ófrávíkjanleg regla, en gerist nægjanlega oft til þess að fjölskyldan mín hefur oft orð á þessum ógöngum mínum. Þessi óheppni mín hefur samt ekki farið mikið í taugarnar á mér, en það hefur hins vegar farið alveg hrikalega í mig hversu snemma strætó hættir að keyra á kvöldin og sömuleiðis að akstur hefjist ekki fyrr en undir hádegi um helgar. Þær eru óteljandi ferðirnar sem ég hef þurft að keyra og sækja börnin mín í og úr vinnu, skóla eða íþróttaæfingum vegna þess að strætó er hættur eða ekki byrjaður að ganga. Sumardagurinn fyrsti var einn þessara strætópirringsdaga. Ég hafði ætlað mér að kúra svolítið, enda frídagur hjá mér, en það var svo sannarlega ekki hægt því það var engin strætóferð fyrr en klukkan ellefu. Dóttirin átti að mæta í skólann þar sem það var auka kennsludagur vegna verkfalls, sonurinn þurfti að mæta til vinnu nokkru seinna svo ég fór tvær skutlferðir þennan morgun. Þegar ég stöðvaði fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík og sá alla bílana sem voru í sömu erindagjörðum og ég þá hugsaði ég að það væri eitthvað mikið rangt við þetta samgöngukerfi okkar.



Mér finnst hugsunin með almenningssamgöngum hér á höfuðborgarsvæðinu röng. Það virðist sem strætó eigi að vera fyrirtæki sem ætlað er að bera sig fjárhagslega að mestu og vera sem minnst byrði á sjóðum almennings. Fyrir vikið er strætó vængstíft fyrirbæri. Það er kannski tilgangurinn svo að einkabíllinn haldi vinsældum sínum?



Það er flestum ljóst að góðar almenningssamgöngur eru þjóðhagslega hagkvæmar. Með góðum almenningssamgöngum meina ég að strætó sé raunverulegur valmöguleiki við einkabílinn. Tíðni ferða á að vera það mikil að notandi þurfi ekki að kunna tímatöfluna utan að, heldur bara að vita hvaða strætó hann á taka. Það þarf að vera hægt að greiða farið án sérstakrar fyrirhafnar, þ.e.a.s. líka með peningum eða greiðslukorti fyrir þá sem nota strætó sjaldan. Auk þess á að sjálfsögðu að vera frítt fyrir börn og framhaldsskólanemendur. Í dag miðast þjónusta strætó við þarfir eigenda í þröngum skilningi, það er eingöngu rýnt í bókhaldið. Strætó á fyrst og fremst að vera þjónusta við almenning. Einnig eru líkur á því að sveitafélögin komi til með að stórgræða með minni notkun á einkabílnum, sem skilar sér í minna sliti á vegum, færri bílastæðum og minni mengun. Þegar Ísland þarf að spara gjaldeyri er það augljós kostur að efla almenningssamgöngur til að þjóðin geti betur staðið í skilum í framtíðinni. Dögun mun berjast fyrir því að almenningssamgöngur verði samgöngur fyrir almenning sem virka og hin jákvæðu áhrif á efnahag og umhverfi verði nýtt öllum til hagsbóta.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×