Viðskipti innlent

Almar nýr framkvæmdastjóri SI

Bjarki Ármannsson skrifar
Almar Guðmundsson.
Almar Guðmundsson. Vísir/Anton
Almar Guðmundsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI). Hann tekur við af Kristrúnu Heimisdóttur sem lét af störfum í síðustu viku eftir aðeins níu mánuði í starfi.

Hann hefur undanfarin fimm ár verið framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda en áður starfaði hann við ýmis stjórnunarstörf innan Íslandsbanka. Hann er formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar í Garðabæ en hefur einnig á undanförnum árum fengist við kennslu við Háskólann í Reykjavík.

Almar er kvæntur Guðrúnu Zoëga hjúkrunarfræðingi og eiga þau fimm börn. Hann er bróðir Sigmars Guðmundssonar sjónvarpsmanns.

„Samtök iðnaðarins bjóða Almar hjartanlega velkominn til starfa. Við væntum mikils af ráðningu hans en framundan hjá samtökunum eru bæði spennandi og krefjandi verkefni nú þegar við sjáum að íslenskt efnahagslíf er að rétta úr kútnum eftir erfið ár,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI í tilkynningu.

„Samtök iðnaðarins eru stór og sterk samtök og það er mikilvægt að rödd iðnaðarins fái að hljóma svo að atvinnulífið og samfélagið allt megi blómstra. Á bakvið Samtök iðnaðarins er fjöldi bæði stórra og smárra fyrirtækja sem saman mynda undirstöðu framfara og framleiðni í landinu.

Ég hlakka til að vinna með aðildarfyrirtækjum, stjórn og starfsmönnum SI að þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru í íslensku atvinnulífi,“ segir Almar í tilkynningunni.



Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×