Fótbolti

Allur íslenski hópurinn kostar minna en Raheem Sterling

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ísland fagnar eftir sigurinn gegn Austurríki.
Ísland fagnar eftir sigurinn gegn Austurríki. vísir/getty
Íslenski landsliðshópurinn í heild sinni kostar minna en það kostaði Manchester City að næla sér í Raheem Sterling frá Liverpool. Þetta kemur fram í úttekt Sky Sports.

Sky Sports fréttastofan segir að það verði nokkuð kunnugleg andlit í íslenska liðinu í Nice þegar England mætir Íslandi annað kvöld, en Gylfi Sigurðsson sé sá þekktasti.

Þeir tóku saman hvað hver íslenski leikmaður kostar og báru það saman við enska liðið. Lesa má greinina hér, en þar segir einnig frá því að allt byrjunarlið Ísland gegn Portúgal kostaði 16.4 milljónir punda þar af Gylfi Sigurðsson rúmar tíu milljónir.

Allt enska byrjunarliðið sem hefur byrjað á þessu Evrópumóti kostar samanlagt 131.5 milljónir punda og til að bæta því kostuðu fimm leikmenn Tottenham 12 milljónir punda samtals í síðasta leik.

Nokkrir leikmenn íslenska hópsins verðlagðir samkvæmt síðustu sölu:

Hannes Thor Halldorsson - est. €300,000 - Sandnes Ulf to NEC Nijmegen

Ragnar Sigurdsson - €4.25m - Copenhagen to Krasnodar

Kari Arnason - Frítt - Rotherham to Malmo

Ari Freyr Skulason - est. €263,000 - Sundsvall to Odense

Birkir Mar Saevarsson - est. €375,000 - SK Brann to Hammarby

Aron Gunnarsson - Frítt - Coventry to Cardiff

Birkir Bjarnason - €2m - Pescara to Basel

Arnor Ingvi Traustason - €1.9m - Norrkoping to Rapid Vienna

Elmar Bjarnason - Frítt - Randers to Aarhus

Gylfi Sigurdsson - €10.1m - Spurs to Swansea

Johann Berg Gudmundsson - Frítt - AZ Alkmaar to Charlton

Kolbeinn Sigthorsson - €3m - Ajax to Nantes

Jon Dadi Bodvarsson - Frítt - Viking to Kaiserslautern

Eidur Gudjohnsen - Frítt - Shijiazhuang to Molde

Byrjunarlið Englands og verð:

Joe Hart (£1.5m), Kyle Walker (£3m), Gary Cahill (£7m) Chris Smalling (£10m), Danny Rose (£0), Eric Dier (£4m), Dele Alli (£5m), Wayne Rooney (£27m), Raheem Sterling (£49m), Harry Kane (£0), Adam Lallana (£25m).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×