Menning

Alltaf unun að hlýða á upprunaleg hljóðfæri

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 "Það er gaman að vera með svona flottum hljóðfæraleikurum,“ segir Benedikt sem er líka að syngja hlutverk guðspjallamannsins í Berlín um þessar mundir, en þar með ballettdönsurum.
"Það er gaman að vera með svona flottum hljóðfæraleikurum,“ segir Benedikt sem er líka að syngja hlutverk guðspjallamannsins í Berlín um þessar mundir, en þar með ballettdönsurum. Fréttablaðið/GVA
„Mér líst stórvel á þetta. Það er gaman að vera með svona flottum hljóðfæraleikurum sem spila á upprunaleg hljóðfæri og alltaf er unun að hlýða á,“ segir Benedikt Kristjánsson tenór, sem syngur hlutverk guðspjallamannsins í Jóhannesarpassíunni í Grafarvogskirkju á laugardaginn klukkan 17.

Þar á hann við félaga úr Bach-sveitinni í Skálholti sem sérhæfa sig í að leika á hljóðfæri barokktímans.

Benedikt hefur verið búsettur í Berlín í sex ár og hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegum Bach-keppnum í Þýskalandi.

Hann tafðist á leiðinni hingað til lands vegna verkfalls á Keflavíkurflugvelli og lenti klukkan kortér yfir tvö í fyrrinótt. Var samt mættur í Grafarvogskirkju á æfingu eldsnemma í gærmorgun.

Auk Benedikts syngja einsöng í Jóhannesarpassíunni þau Ágúst Ólafsson bassi, sem syngur hlutverk Jesú, Jóhanna Ósk Valsdóttir alt og Þóra Björnsdóttir sópran. Þær eru félagar í Kammerkór Grafarvogskirkju sem tólf atvinnusöngvarar skipa og verður í stóru hlutverki.

Safnaðarkór Grafarvogskirkju og nokkrir félagar úr öðrum kórum verða með í sálmahluta verksins og tónleikagestum gefst kostur á að taka þátt. Hákon Leifsson, tónlistarstjóri kirkjunnar, stjórnar svo öllu saman.

Til að heiðra 400 ára minningu sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar verður sköpuð lágvær passíustemning í upphafi tónleikanna með því að syngja nokkra af sálmum Hallgríms einradda.

Benedikt kveðst koma hingað heim af og til að sinna misstórum verkefnum og hitta fjölskylduna. Í þetta sinn hefur hann hratt á hæli því hann er í krefjandi verkefnum í Berlín í næstu viku.

„Ég er einmitt líka að syngja hlutverk Jóhannesar guðspjallamanns með ballettdönsurum í dómkirkjunni í Berlín og þarf að vera kominn þangað á mánudag,“ lýsir hann. „Svo er ég að syngja Mattheusarpassíuna í Berlínar-Fílharmóníunni á föstudaginn langa.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×