Menning

Alltaf gaman að tengja saman nýtt og gamalt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Skúli Pálsson, formaður Grænlandsvinafélagsins Kalak, og Páll Skúlason, formaður Dansk-íslenska félagsins. Félögin standa saman að dagskránni Grænland í dag og í gær.
Skúli Pálsson, formaður Grænlandsvinafélagsins Kalak, og Páll Skúlason, formaður Dansk-íslenska félagsins. Félögin standa saman að dagskránni Grænland í dag og í gær. Fréttablaðið/GVA
„Fyrst mun grænlenskur kór frá Sisimut syngja nokkur grænlensk lög, þau eru all ólík okkar hvað sönglagahefð og tónfall snertir. Svo ætlar Knud Michelsen, danskur fræðimaður, að segja frá Knud Rasmussen landkönnuði og þjóðfræðisöfnun hans í Grænlandi. Þannig tengjum við saman nýtt og gamalt og það er alltaf gaman.“

Þannig lýsir Páll Skúlason héraðsdómslögmaður í örstuttu máli dagskrá næsta þriðjudagskvölds í Norræna húsinu. Yfirskriftin er Grænlensk menning í dag og í gær.

Páll er formaður Dansk-íslenska félagsins sem að viðburðinum stendur ásamt Grænlandsvinafélaginu Kalak.

„Grænlensk menning er harla ólík okkar og hefur verið okkur Íslendingum framandi. Þetta er viðleitni til þess að bæta aðeins úr því,“ segir hann.



Fyrirlesarinn Knud Michelsen er Kaupmannahafnarbúi en náskyldur nafna sínum Rasmussen og líka af íslenskum ættum, að sögn Páls.

„Michelsen ætlar að fræða okkur um þjóðlög og ýmislegt sem Rasmussen safnaði á Grænlandi og svo ætlar hann líka að segja frá tengslum hans við Ísland.

Knud Rasmussen var nefnilega mikill Íslandsvinur, kom að minnsta kosti tvisvar hingað og átti hér marga vini. Meðal annars átti hann íslenska kærustu. Hún hét Efemía Indriðadóttir og var dóttir Indriða Einarssonar leikskálds, en samband þeirra entist ekki.“



Páll getur þess að allir séu velkomnir á hina grænlensku dagskrá í Norræna húsinu á þriðjudaginn meðan húsrúm leyfi. Hún hefst klukkan 20.

Knud Rasmussen (1879–1933), landkönnuður og mannfræðingur, var fæddur í Ilulissat í Grænlandi, sonur danska trúboðans Christians Rasmussen og grænlensk-dönsku móðurinnar Lovise Rasmussen. Hann ólst að hluta til upp á Grænlandi og lærði  að veiða, aka hundasleða og lifa við erfiðar aðstæður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×