Enski boltinn

Allt varð vitlaust eftir að Kári skoraði sigurmarkið í gær | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kári Árnason.
Kári Árnason. Vísir/Getty
Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason tryggði Rotherham 2-1 sigur á Millwall í ensku b-deildinni í gær. Allt varð hinsvegar vitlaust á pöllunum eftir markið.

Mark Kára kom með skalla eftir horn á 85. mínútu leiksins en Millwall-liðið komst yfir á 20. mínútu og var yfir í hálfleik.

Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Kára og félaga enda náði liðið með honum sex stiga forskoti á Millwall sem situr nú í þriðja neðsta sæti deildarinnar.

Stuðningsmenn Millwall eru ekki þeir prúðustu í enska boltanum og þeir misstu sig alveg eftir markið hjá Kára. Þeir heimtuðu að knattspyrnustjórinn  Ian Holloway yrði rekinn og reyndu síðan að komast yfir á svæði stuðningsmanna heimaliðsins en leikurinn fór fram á New York Stadium, heimavelli Rotherham United.

Lögreglan reyndi að stöðva framgang Millwall-stuðningsmannanna sem reyndu einnig að skjóta skeytum í átt að stuðningsmönnum Rotherham sem voru í skýjunum með þetta mikilvæga sigurmark hjá Kára.

Það er hægt að sjá myndband af þessu óeirðum á heimasíðu Mirror en hér fyrir neðan er einnig myndband sem stuðningsmaður Rotherham United tók af því sem gerðist í stúkunni á New York Stadium.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×