Innlent

Allt um veðrið: Rigning í dag og ofsaveður í kvöld

Bjarki Ármannsson skrifar
Vindaspá Veðurstofu fyrir klukkan ellefu í kvöld. Von er á ofsaveðri norðvestantil á landinu.
Vindaspá Veðurstofu fyrir klukkan ellefu í kvöld. Von er á ofsaveðri norðvestantil á landinu. Mynd/Veðurstofa
Spáð er stormi eða roki, 20 til 25 metrum á sekúndu, á landinu seint í dag en ofsaveðri, 28 til 32 metrum á sekúndu, norðvestan til í kvöld.

Þá má búast við fyrstu asahláku vetrarins í dag um land allt og mun hún ágerast þegar líður á kvöldið. Spáð er talsverðri rigningu á sunnan- og vestanverðu landinu samhliða hlýnandi veðri.

Veðurstofa segir viðbúið að aukið álag verði á afrennsliskerfi bæja og bendir á að gott er að hreinsa vel frá niðurföllum og útidyrum kjallara.

Á vef Veðurstofu er bent á að svipað veður hafi gert fyrir nær akkúrat ári, þann 14. mars 2015, og var það mesta hvassviðri þess stormasama vetrar.

Á morgun á sunnanáttin að ganga smám saman niður og þá kólnar undir frostmark vestast á landinu.

Opið verður á skíðasvæðum víða um land í dag, til dæmis á Dalvík, í Stafdal, á Siglufirði og á Akureyri. Lokað verður í Bláfjöllum.

Hviður á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli eru nú um þrjátíu til fjörutíu metrar á sekúndu en það mun lægja heldur um stund um hádegi. Snjókoma og hálka er á Hellisheiði og hálka í Þrengslum. Fróðárheiði er lokuð og sums staðar nokkur hálka eða snjóþekja á Vesturlandi.

Vegir á Norðurlandi vestra eru víða auðir en farið er að snjóa á Öxnadalsheiði. Hálka er á Mývatnsöræfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×