Lífið

Allt um brúðkaup Georges Clooney

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
George og Amal.
George og Amal. vísir/getty
Stórleikarinn George Clooney og mannréttindalögfræðingurinn Amal Alamuddin gengu í það heilaga á laugardaginn í Feneyjum.

Athöfnin hófst klukkan 20.00 á Aman Canal Grande-hótelinu. George og Amal hétu hvort öðru undir hvítum rósaboga en turtildúfurnar skrifuðu heitin sjálf.

Klukkan 20.18 voru George og Amal orðin hjón og því var athöfnin frekar stutt.

Eftir athöfnina héldu brúðhjónin og gestir þeirra á veitingastað hótelsins þar sem fimm rétta máltíð var borin fram en ítalski kokkurinn Riccardo De Pra töfraði hana fram. Um forréttina sá Federico Salza. Á matseðlinum var meðal annars humar, risotto og nautakjöt.

Meðal gesta voru tískumógúllinn Anna Wintour, ofurfyrirsætan Cindy Crawford, leikarinn Matt Damon og leikkonan Emily Blunt. Nutu gestir tóna lítillar strengjasveitar undir borðhaldinu.

Djasstríó og píanisti tróðu líka upp um kvöldið og segir heimildarmaður tímaritsins Us Weekly að leikarinn Bill Murray hafi verið yfir sig hrifinn af músíkinni.

Og að sjálfsögðu var eitthvað um ræðuhöld. Ramzi Alamuddin, faðir brúðarinnar, setti pressu á brúðhjónin og sagði að nú væri kominn tími á barnabörn. Þá voru skilaboð frá leikkonunni Söndru Bullock og leikaranum Dan Aykroyd lesin upp í veislunni.

Gestir borðuðu af fínasta postulínsstelli sem var skreytt með 24 karata gullrönd. Þá voru hvítar rósir út um allt og um tuttugu nútímalistaverk sem voru handvalin af Amal prýddu salinn.

Margir af gestunum skemmtu sér til klukkan fimm um nóttina en brúðhjónin drógu sig fyrr í hlé og gistu á Alcova Teipolo-svítunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×