Innlent

Allt tiltækt slökkvilið sent í Mosfellsbæ

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Vísir/Stefán
Eldur kom upp í íbúðarhúsnæði við Tröllateig í Mosfellsbæ um klukkan tólf í dag. Tilkynnt var um eld á svölum og svartan reyk.

Allir slökkviliðsbílar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið sendir á vettvang en nánari upplýsingar hafði slökkvilið ekki í augnablikinu.



Uppfært klukkan 12:17

Beiðni um þjónustu slökkviliðs hefur verið afturkölluð. Um minniháttar rusl á svölum var að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×