Golf

Allt það besta frá öðrum degi á Opna breska

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Það voru mörg glæsileg tilþrif sem litu dagsins ljós á öðrum keppnisdegi á Opna breska meistaramótinu sem fram fer á Royal Liverpool vellinum. Norður-Írinn Rory McIlroy er í kjörstöðu með fjögurra högga forystu eftir 36 holur á samtals 12 höggum undir pari. McIlroy hefur leikið báða hringina í mótinu á 66 höggum.

Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson var heitur í dag og átti besta hring mótsins til þessa þegar hann lék á 65 höggum. Hann er fjórum höggum á eftir McIlroy.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá samantekt frá öðrum keppnisdegi. Margir kylfingar sýndu glæsileg tilþrif, meða annars Spánverjinn Sergio Garcia sem sló niður af löngu færi fyrir erni á annarri holu.

Opna breska er í beinni útsendingu á Golfstöðinni og hefst útsending kl. 09:00 í fyrra málið þegar fyrsti ráshópur fer af stað. Phil Mickelson er meðal þeirra kylfinga sem hefur leik snemma í fyrramálið.



Efstu kylfingar eftir 36 holur á Opna breska:

1. Rory McIlroy -12

2. Dustin Johnson -8

3.-8. Louis Oosthuizen -6

3.-8. Charl Schwartzel -6

3.-8. Sergio Garcia -6

3.-8. Rickie Fowler -6

3.-8. Ryan Moore -6

3.-8. Francesco Molinari -6




Fleiri fréttir

Sjá meira


×