Innlent

Allt sem við vitum um byssurnar á 90 sekúndum

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Vopnin hafa verið daglega í umræðunni frá því að fyrst var greint frá þeim.
Vopnin hafa verið daglega í umræðunni frá því að fyrst var greint frá þeim. Vísir / Getty
Það er ekki furða að margir skuli vera búnir að tapa áttum í byssumálinu. Fullyrðingar málsaðila hafa ítrekað stangast á og mönnum hefur ekki einu sinni borið saman um hvort byssurnar hafi verið keyptar eða fengnar að gjöf. Vísir tók því saman staðreyndir málsins.

Í árslok 2013 var undirritaður samningur um kaup Landhelgisgæslunnar á 250 hríðskotabyssum frá norska hernum. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi norska hersins. Byssurnar kostuðu 11,2 milljónir króna, eða um 46 þúsund krónur stykkið. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti greiðsla mun fara fram en fullyrt er að engin greiðsla hafi verið innt af hendi enn sem komið er.

Byssurnar voru afhentar Landhelgisgæslunni og eru samkvæmt upplýsingum frá gæslunni á geymslusvæði á Suðurnesjum. Lögreglan hefur staðfest að fjöldi lögreglumanna hefur farið á námskeið og æfingu í að skjóta með byssunum á umræddu svæði. Fullyrt er að byssurnar hafi ekki verið tollaafgreiddar en það hefur ekki fengist staðfest frá öðrum en gæslunni.

Um er að ræða byssur af gerðinni MP5 sem eru hríðskotabyssur sem skjóta 9mm skotum. Það er sama stærð af skotum og notaðar eru í skammbyssum lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar.

Ráðamenn hafa fullyrt að þeir hafi ekki vitað af kaupunum fyrr en þau hafi verið gengin í gegn. Heldur hafi það ekki komið á borð ráðherra þegar lögregluembættum um landið var boðið að fá hluta af byssunum til sín. Það stangast á við heimildir Vísis úr forsætisráðuneytinu um að minnisblað hafi verið unnið af ríkislögreglustjóra fyrir dómsmálaráðherra þar sem áformin voru kynnt.

Það sem enn liggur ekki ljóst fyrir er hvort að greiðsla hafi farið fram, hversu margar byssur fara til hvers lögregluembættis og hvort að stjórnvöld hafi verið upplýst um kaupin. Þá hafa heldur ekki fengist upplýsingar um vopnaeign Landhelgisgæslunnar eða hvaða breytingar hafa orðið á vopnaeign lögreglunnar síðan árið 2012.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×