Erlent

Allt sem við vitum um árásina í London: Fjórir látnir og sjö handteknir

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Árásin var gerð í hjarta Lundúna, á Westminster-brúnni og við þinghúsið.
Árásin var gerð í hjarta Lundúna, á Westminster-brúnni og við þinghúsið. vísir/getty
Fjórir létust, þar með talið árásarmaðurinn sjálfur, og 29 manns slösuðust í hryðjuverkaárás sem gerð var nærri þinghúsinu í London eftir hádegi í gær. Sjö manns hafa verið handteknir í tengslum við árásina en handtökur voru meðal annars gerðar í London og Birmingham.

Lögreglan hyggst ekki nafngreina árásarmanninn strax og biður fjölmiðla um að gera það ekki. Talið er að hann hafi verið einn að verki og hafi verið undir áhrifum frá alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum.

Hér á eftir fer samantekt á því sem vitað er nú um árásina, byggð á umfjöllun BBC og Guardian.

Hvað gerðist?

Klukkan 14:40 í gær ók árásarmaðurinn bíl eftir Westminster-brúnni, nálægt þinghúsinu. Hann drap að minnsta kosti tvo gangandi vegfarendur og særði fjölda annarra.

Árásarmaðurinn keyrði síðan á handrið við þinghúsið, hljóp út úr bílnum vopnaður hnífi og hljóp að þinghúsinu þar sem hann mætti lögreglumönnum. Maðurinn stakk einn lögreglumann, sem var óvopnaður, til bana.

Hvernig var árásarvettvangurinn?

Vitni hafa lýst árásarvettvangnum með miklum hryllingi. Einn þeirra, Richard Tice, sagði að hann hefði verið að koma af Westminster-neðanjarðarlestarstöðinni um klukkan 14:45 og var þá sagt af lögreglumönnum að fara út á Westminster-brúna.

Þar sá Tice fólk hljóta aðhlynningu þar sem það lá í götunni. Honum var sagt að bíll hefði keyrt á miklum hraða yfir brúna, frá suður til norðurs, og keyrt niður fólk.

„Ég sá að minnsta kosta átta manns liggjandi á brúnni,“ sagði Tice.

Hver eru fórnarlömbin?

Af þeim sem létust í árásinni hefur aðeins nafn lögreglumannsins verið gefið upp. Hann hét Keith Palmer, var 48 ára gamall og hafði starfað sem lögreglumaður í fimmtán ár. Hann lætur eftir sig eiginkonu og börn.

Ein kona og einn maður létust svo þegar bílnum var keyrt á þau á Westminster-brúnni.

Á meðal hinna særðu eru svo þrír lögreglumenn sem voru á brúnni þegar árásin átti sér stað. Tveir þeirra eru alvarlega slasaðir.

Þá var einni konu bjargað eftir að hún féll af brúnni og í Thames-ána. Hún slasaðist við fallið en ekki er vitað hversu alvarlega.

Lögreglan hefur sagt að hinir slösuðu séu af ýmsum þjóðernum. Þannig var hópur franskra skólabarna á brúnni og slösuðust einhver þeirra.

Fjórir háskólastúdentar eru einnig á meðal hinna slösuðu sem og fimm suður-kóreskir ferðamenn.

Smella má á myndina til að sjá hana í stærri útgáfu.graphic news
Hver er árásarmaðurinn og var hann einn að verki?

Bæði lögreglan sem og Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, hafa sagt að talið sé að árásarmaðurinn hafi verið einn að verki. Þó hafa sjö verið handteknir í tengslum við árásina en árásarmaðurinn hefur ekki verið nafngreindur. Þá hefur þjóðerni hans ekki verið gefið upp.

Á blaðamannafundi í morgun sagði Mark Rowley, hjá lögreglunni í London, að talið sé að árásarmaðurinn hafi verið undir áhrifum frá alþjóðlegum hryðjuverkasamtökum og hryðjuverkastarfsemi tengdri öfgafullum íslamistum.

Þá sagði hann að lögreglan væri nú að einbeita sér að því að rannsaka hvað lá að baki árásinni, hvernig hún var undirbúin og hvort að árásarmaðurinn hafi notið einhverrar aðstoðar eða átt sér vitorðsmenn.

Rowley sagði að lögreglan hefði ekki upplýsingar um að almenningur væri í hættu vegna yfirvofandi annarrar árásar.

Hvaða öryggisráðstafanir hafa verið gerðar?

Þingfundi var slitið í kjölfar árásarinnar í gær og var stjórnmálamönnum, blaðamönnum og gestum ekki hleypt út úr þinghúsinu eða skrifstofum þess í fimm klukkutíma. Þá var fjöldi bygginga í grennd við þinghúsið rýmdur.

Báðar deildir breska þingsins munu koma saman í dag samkvæmt dagskrá. Lögreglan hefur sagt að það verði bæði aukinn fjöldi vopnaðra og óvopnaðra lögreglumanna á götum Lundúna í dag. Þá hefur viðbúnaðarstig vegna ferðalaga til og frá Bretlandi verið hækkað í það að árás er nú talin mjög líkleg.

Hvað með svæðið þar sem árásin var gerð?

Westminster-neðanjarðarlestarstöðinni hefur verið lokað en þó er hægt að skipta þar um lest. Lögreglan fólk um að forðast eftifarandi svæði: Þingtorgið, Westminster-brúna, Lambeth-brúna, Victoria-stræti upp með Broadway og Victoria Embankment upp að Embankment-lestarstöðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×