Skoðun

Allt í plati

Ragna Sigurðardóttir skrifar

Aldrei nokkurn tímann datt mér í hug að verkfall lækna stæði yfir í 6 vikur. Sjötta vika verkfalls lækna, þess fyrsta í sögunni, er þó gengin í garð.



Læknar eru byrjaðir að birta uppsagnarbréf. Læknanemar og kandídatar neita að vinna á spítalanum án samninga. Helmingur sérfræðilækna á landinu, 181 læknir, segist íhuga sterklega eða hafa þegar ákveðið að flytja úr landi á næstu árum. Helmingur meltingarlækna spítalans hefur þegar sagt upp störfum. Svæfingarlæknar, gjörgæslulæknar og taugalæknar íhuga uppsagnir strax eftir áramót.



12 vikna verkfall án nokkurra hléa blasir við – frá áramótum fram að páskum. Forsætisráðherra kallar hins vegar eftir þjóðarsátt um forgangsröðun í þágu heilbrigðiskerfisins.



90% þjóðarinnar vilja forgangsraða í þágu heilbrigðiskerfisins. 78% segjast styðja kjarabaráttu lækna. 70% vilja að læknar fái hækkun umfram aðrar stéttir. Minnst 11 starfsstéttir hafa opinberlega lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu lækna. Í sérstakri umræðu á Alþingi í nóvember um verkfall lækna voru allir þeir þingmenn sem tóku til máls, úr öllum flokkum, sammála um að leysa þyrfti deiluna sem fyrst. Samt kallar forsætisráðherra eftir þjóðarsátt.



Fjármálaráðherra telur kröfur lækna vera óraunhæfar. Þær samrýmast ekki markmiði Seðlabankans um 3,5-4% hámark á launahækkunum vegna verðbólgumarkmiðs SÍ. Skuldaleiðréttingin samræmist ekki heldur þessu markmiði.



Raunhæfar kröfur?

En eru raunhæfar kröfur gerðar til lækna á Íslandi? Er raunhæft að áætla að unglæknar snúi til síns heima eftir sérnám, á eigin kostnaði, með óleiðrétt námslán á herðum sér, þegar kjör þeirra hér eru margfalt verri en annars staðar? Búast stjórnvöld við að læknar, sem haldið hafa út í niðurskurðartíð undanfarins áratugar, láti bjóða sér aðeins 3% launahækkun þegar starfsmönnum spítalans hefur fækkað og verkefnum fjölgað um leið? Er líklegt að læknar sem hætt hafa störfum á Íslandi vegna aðstöðu og kjara, snúi til baka fyrir 3% launahækkun? Er raunhæft að áætla að kandídatar og nemar starfi á spítalanum við óbreytt kjör?



Ríkisstjórnin segist setja heilbrigðismál í forgang. Hún segist hafa gert það með því að leggja til „auka“ milljarð í rekstur Landspítalans. Þar að auki hefur hún lagt tæpar 900 milljónir í hönnun nýs spítala. Það er verulegt fagnaðarefni. Það blæs manni von í brjóst. En þetta er ekki forgangsröðun í þágu heilbrigðiskerfisins.



Raunveruleg forgangsröðun einkennist ekki af spurningum formanns fjárlaganefndar um „hvenær sé nóg nóg“ þegar bent er á að enn vanti milljarð í rekstrargrunn Landspítalans. Hún felur ekki í sér að forsætisráðherra kalli eftir „þjóðarsátt“ þegar tæp 80% þjóðarinnar styðja kjarabaráttu lækna. Hún lýsir sér ekki í því að fjármálaráðherra fullyrði að „kröfur lækna séu óraunhæfar“ þegar kröfur ríkisins sjálfs til lækna eru ekki aðeins óraunhæfar heldur ómanneskjulegar.



Mun forgangsröðun ríkisstjórnarinnar bjarga heilbrigðiskerfinu? Eða er þetta allt í plati?



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×