Lífið

Allt fór á fleygiferð eftir sigurinn

,,Við stóðum okkur vel á þessum tónleikum og þar með var frægðin kominn í einum hvelli og við tæplega undirbúnir fyrir ósköpin sem þessu fylgdi," segir Bjössi úr Greifunum um tónleikana á Arnarhóli 1986.
,,Við stóðum okkur vel á þessum tónleikum og þar með var frægðin kominn í einum hvelli og við tæplega undirbúnir fyrir ósköpin sem þessu fylgdi," segir Bjössi úr Greifunum um tónleikana á Arnarhóli 1986. MYND/VILHELM
Um þessar mundir eru 30 ár síðan ung hljómsveit frá Húsavík vann Músiktilraunir og hóf þar með langan og farsælan feril. Hljómsveitin heitir auðvitað Greifarnir og mánuðirnir sem fylgdu í kjölfarið áttu eftir verða ótrúlega viðburðaríkir þegar sveitinni skaut ógnarhratt upp á stjörnuhiminn.

Sveinbjörn Grétarsson, eða Bjössi eins og hann er alltaf kallaður, er gítarleikari Greifanna og einn laga- og textahöfundur sveitarinnar. Hann segist varla trúa því að liðin séu 30 ár síðan þeir unnu Músiktilraunir enda líður honum eins og hann sé tæplega þrítugur sjálfur. „Það var náttúrulega rosaleg upplifun fyrir strákpjakka frá Húsavík að vinna Músiktilraunir.Við tókum þátt árinu áður undir nafninu Special Treatment og lentum í 2. sæti. Við mættum því ári síðar undir nýju nafni, með íslenska texta og Felix Bergsson sem söngvara. Þannig unnum við keppnina sem var stórkostleg tilfinning.“

Allt fór á fleygiferð í lífi ungu mannanna og næstu mánuðir urðu viðburðaríkir. Í júní var sveitin valin sem ein fjöggurra íslenskra hljómsveita til að hita upp á Listapoppi, tveggja daga tónleikum í Laugardalshöll, og í ágúst spiluðu Greifarnir á stórtónleikum sem haldnir voru við Arnarhól í Reykjavík. Báðir tónleikarnir áttu stóran þátt í að gera Greifana að einni vinsælustu hljómsveit landsins næstu ára.

Eftirminnilegir tónleikar

Bjössi rifjar upp þessa örlagaríku mánuði. „Að vinna Músiktilraunir 1986 var mikill happafengur fyrir okkur. Reykjavíkurborg átti 200 ára afmæli sama ár og voru af því tilefni skipulagðir stórtónleikarnir Listapopp. Þar komu fram Simply Red, Madness, Fine Youn Cannibals, Loyd Cole and the Commotions og svo íslensku sveitirnar Grafík, Greifarnir, Rikshaw og Bjarni Tryggva.“

Gríðarlegur metnaður var lagður í útlit og fatnað sveitarinnar að sögn Bjössa og var Gerður í Flónni fengin til að sérsauma búninga eftir nýjustu tísku frá London. „Svo vorum við með margverðlaunaða hárgreiðsludömu sem sá um klippingu og förðun enda var þetta á „eighties“ tímabilinu.“

Greifarnir tilbúnir fyrir Listapoppstónleikana 1986. Ein bakraddarsöngkonan Fine Young Caninbals átti ekki til orð yfir hvað fötin voru flott.MYND/ÚR EINKASAFNI
Allir biðu eftir Greifunum

Risatónleikarnir á Arnarhóli voru í beinni útsendingu á RÚV en um 20.000 manns voru viðstaddir þá sem var einstakt á þeim tíma. Þeir fengu mikið áhorf og voru að sögn Bjössa ábyggilega teknir upp á VHS vídeóspólu á öðru hvoru heimili. „Við stóðum okkur vel á þessum tónleikum og þar með var frægðin kominn í einum hvelli og við tæplega undirbúnir fyrir ósköpin sem þessu fylgdi. Reyndar var frægðin komin á undan tónleikunum. Þegar við mættum á svæðið voru einhver bönd búin að spila. Þá sögðu Gulli Helga og Þorgeir Ástvaldsson sem voru kynnar við okkur: „Gott að þið eruð komnir, það er allur skarinn búinn að vera að kalla á Greifana“. Við héldum að þeir væru að grínast og fórum allir í hnút en svo heyrðum á milli laga að þetta var rétt. Eftir tónleikana þurftum við aðstöð lögreglu til að komast í burtu af svæðinu.“

Góðar minningar

Ýmsar útihátíðir og sveitaböll standa upp úr í minningunni. „Við voru t.d. eina bandið sem spilaði á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 1988 utan þess að Sléttuúlfarnir spiluðu í klukkustund.“ Eitt ball í Hreðavatnsskála var líka sérlega eftirminnilegt. „Þá þurfti að loka þjóðvegi eitt sem liggur við húsið í rúma klukkustund vegna mannmergðar. Við spiluðum í tjaldinu við hliðina á skálanum og stemmingin sem myndaðist þar var einstök.“



Á tímabili var í miklu uppáhaldi hjá bandinu að spila í Tjarnarborg á Ólafsfirði. „Ástæðan var aðalega hversu skemmtilegur staðarhaldarinn var á þeim tíma en þar réð Rögnvaldur Ingólfsson lögum og lofum. Ævinlega urðu deilur í lok dansleiks við Rögnvald en hann vildi alltaf að við fengjum meira borgað en samið hafði verið um. Það kom ekki til greina af okkar hálfu. Samningar náðust þó alltaf á endanum.“

Greifarnir spiluðu á stórtónleikunum Listapoppi í Laugardalshöll sumarið 1986. Þar hituðu þeir upp fyrir Madness og Fine Young Cannibals.MYND/ÚR EINKASAFNI
Saknar sveitaballa

Margt hefur breyst í bransanum síðustu þrjá áratugi, sumt til betri vegar, annað ekki. „Ég er alinn upp á blómatímabili sveitaballa þar sem allir eldri en 16 ára skemmtu sér saman á sveitaböllum. Ég sakna þessa tíma, bæði sem gestur og líka sem hljómsveitarmeðlimur upp á sviði. Þetta er liðin tíð og sveitaballamenningin er nánast horfin.“

Aftur á móti er í dag hægt að halda veglegri tónleika en áður og fólk er duglegra að mæta og um leið tilbúið að borga hærra miðaverð. „Í dag upplifi ég gríðarlega grósku í tónlistarbransanum og næ ekki að fylgjast með nándar nærri öllu sem er í gangi. Ég kvíði engu þegar kemur að framtíð íslenskrar tónlistar.“

Annir framundan

Undanfarin ár hafa Greifarnir spilað opinberlaga 10-20 sinnum á ári. Nú er hins vegar ætlunin að spila meira að sögn Bjössa og fara í órafmagnaða tóleikaferð um landið í tilefni 30 ára afmælisins. „Þar munum við leggja áherslu á mikla nánd við áhorfendur, taka lög sem heyrast ekki oft á böllum auk þess að rifja upp sögur af ferlinum. Þetta er enn á undirbúningsstigi og ekki komnar neinar fastar dagsetningar. Svo höfum við verið að hittast til að skoða og semja nýtt efni sem við höfum ekki gert lengi. Hvort eða hvenær við gefum þetta efni út kemur svo bara í ljós.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×