Innlent

Allt að tuttugu stiga hiti í dag

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hitaspá dagsins í dag.
Hitaspá dagsins í dag. Vísir
Blíðviðri síðustu daga heldur áfram í dag og spáð er góðu veðri um mest allt land. Gert er ráð fyrir allt að tuttugu stiga hita í dag á svæðinu í kringum Faxaflóa. Næstu daga mun þó draga úr góðviðrinu án þess þó að veður versni til muna.

Spáð er sextán til tuttugu stiga hita og sól á svæðinu í kringum Faxaflóa í dag og þá er einnig blíðviðri á Vestfjörðum, Austfjörðum og á suðurströndinni. Þó er þokuloft víða úti við norður- og austurströndina og dálítil rigning suðaustan til.

„Við erum einfaldlega heppin, það er að dælast hlýtt loft á okkur,“ segir vakthafandi veðurfræðingur Veðurstofu Íslands um veðrið undanfarna daga sem einkennst hefur af sól og blíðu víðast hvar um land.

Þetta hlýja loft er þó á leið frá landi og út vikuna er gert ráð fyrir lækkandi hita og úrkomu hér og þar.

„Þetta er ósköp meinlaust veður en ekki kannski þessi glampandi sól og blíða sem við höfum séð undanfarna daga,“ segir veðurfræðingur um veðrið út vikuna.

Veðurhorfur á landinu:

Austan 8-13 og dálítil rigning syðst og SA-til annars austlæg átt, 3-8 m/s. Bjart með köflum en þokuloft við norðurströndina og stöku síðdegisskúrir vestanlands. Rigning A- og SA-lands á morgun, en skúraveður SV-til og yfirleitt þurrt um landið norðanvert. Hiti 10 til 19 stig.

Á föstudag og laugardag:

Norðaustan 8-13 m/s NV-til, en annars mun hægari. Dálítil rigning á N-verðu landinu en skúrir syðra. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast S-lands.

Á sunnudag og mánudag:

Hægviðri og skúrir um allt land, en áfram fremur milt veður.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir vaxandi austanátt með talsverðri rigningu S- og SA-til um kvöldið en hægari og skýjað með köflum norðan jökla. Heldur kólnandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×