Lífið

Allsberir dvergar, geitur og beinagrindur

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Leikarar í sýningunni Beachers Mad House endurgerðu nú fræga ljósmynd Kanye West.
Leikarar í sýningunni Beachers Mad House endurgerðu nú fræga ljósmynd Kanye West. Vísir
Um síðustu helgi gerði Kanye West allt vitlaust með því að deila nýju myndbandi þar sem má sjá 12 fræga einstaklinga nakta saman upp í rúmi. Það gerði hann án vitundar nokkra þeirra sem þar voru með því að láta gera vaxdúkkur af stjörnunum Taylor Swift, Bill Cosby, Donald Trump og fleiri.

Nú hefur hinn uppátækjasami Jeff Beacher sem stendur fyrir leiksýningunni Beachers Mad House á hinu fræga Roosevelt hóteli í hjarta Hollywood endurtekið leikinn. Með dvergum, geit, plastdúkkum og sjálfum sér í hlutverki Kim Kardashian.

Útkoman er... ja, tja... nokkuð merkileg en myndin segir meira en þúsund orð.

Það var fréttastofa TMZ sem greindi frá.

Hér fyrir neðan er svo upprunalega myndin til samanburðar.

Hvor er betri? Nýja útgáfan eða sú eldri?Vísir

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×