Lífið

Alls ekkert sem þarf að óttast á Álfahátíðinni í dag

Guðrún Ansnes skrifar
Inga segir fallega tónlist koma til með að fylla öll vit, og allir séu velkminr í Hellisgerðið í dag til að njóta.
Inga segir fallega tónlist koma til með að fylla öll vit, og allir séu velkminr í Hellisgerðið í dag til að njóta. Visir/GVA
„Þetta er ekkert spúkí og alls ekki nauðsynlegt að trúa á álfa, bara að hafa gaman af fallegri tónlist,“ segir Inga Björk Ingadóttir músíkmeðferðarfræðingur sem leikur á lýru og syngur á Litlu-Álfahátíðinni sem fram fer í Álfagarðinum í Hafnarfirði í dag.

„Hátíðin hefur verið haldin árlega síðan árið 2011 og er í Hellisgerði, sem er í hjarta bæjarins, svona sannkölluð náttúruperla í miðjum bænum,“ útskýrir Inga.

Hátíðin er haldin á sumarsólstöðum, en það er alls ekki fyrir tilviljun. „Það er svo mikil orka og kraftur sem fylgir þessum tíma ársins sem opnar fyrir vináttutengsl milli álfa, huldufólks og manna,“ bendir Inga lauflétt á.

„Hátíðin í ár hefur einnig sína sérstöðu, en í ár koma bara konur að tónlistarflutningi, en það er tileinkað hundrað ára kosningaafmæli kvenna.“

Fram koma auk Ingu, Terra Tirapelli sem leikur á indíánaflautu, Elaine Ní Cuana leikur á írska sekkjapípu og Bergljót Arnalds sem flytur tónlist, þar sem hún notar meðal annars eigin hjartslátt til undirspils. Ragnhildur Jónsdóttir sjáandi mun halda erindi um álfana og náttúruverurnar á svæðinu.

Inga segir hátíðina henta allri fjölskyldunni, enda standi herlegheitin yfir frá klukkan tvö til fjögur, og geti fólk bara kíkt við hvenær sem er á því tímabili.

„Það er nefnilega svo merkilegt að fá að spila úti undir berum himni, það verður allt öðruvísi en að gera það inni. Ég er nýr Hafnfirðingur svo ég er algjörlega heilluð af Hellisgerði og er því mjög spennt fyrir að fá að leika á hátíðinni,“ segir Inga og skýtur að, að það séu sannarlega forréttindi að fá að spila í Álfagarðinum, og á sama tíma forréttindi að fá að hlýða á þessa óvenjulegu tóna. Hefst hátíðin fyrir framan álfakirkjuna við gosbrunninn með tónlist og álfabæn sjálfrar Tamínu álfkonu.


Tengdar fréttir

Eru álfar kannski hommar?

Særún Lísa Birgisdóttir þjóðfræðingur verður með forvitnilega leiðsögn í Árbæjarsafni á morgun.

Álfar leggjast gegn raflínu í Hafnarfirði

Fjöldi umsagna barst Hafnarfjarðarbæ vegna lagningar Suðurnesjalínu 2 í landi bæjarins við Vallahverfi og leggjast íbúar hverfisins gegn mannvirkjagerðinni.

Álfar eru algjörar dúllur

Ég á marga vini og nána ættingja sem hafa glímt við alvarlega og oft króníska sjúkdóma, en alkóhólismi er sá sjúkdómur sem svo margir þeirra hafa glímt við. Enda er oft sagt að þetta sé fjölskyldusjúkdómur sem getur gengið í erfðir og hefur jafnframt mjög mikil áhrif á aðra fjölskyldumeðlimi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×