Erlent

Allo, Allo! stjarnan Gorden Kaye er látin

atli ísleifsson skrifar
Allt í hers höndum nutu mikilla vinsælda á Íslandi.
Allt í hers höndum nutu mikilla vinsælda á Íslandi.
Breski leikarinn Gorden Kaye er látinn, 75 ára að aldri.

Kaye gerði garðinn frægan fyrir hlutverk sitt sem Rene í þáttunum ‘Allo ‘Allo!, eða Allt í hers höndum.

Í frétt BBC segir að Kaye hafi andast á hjúkrunarheimili í morgun.

Kaye lék kaffihúsaeigandann Rene Artois í þáttunum sem snerust um ástir og örlög liðsmanna frönsku andspyrnuhreyfingarinnar í seinna stríði, eftir að þýskt hernámslið hafði lagt stór landsvæði í Frakklandi undir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×