Menning

Allir velkomnir á ókeypis tónleika

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Fiðlunemendur úr Allegro Suzukitónlistarskólanum eru spenntir fyrir tónleikunum.
Fiðlunemendur úr Allegro Suzukitónlistarskólanum eru spenntir fyrir tónleikunum. Mynd/Úr einkasafni
Hópur strengjanemenda frá Bayswater Suzuki Group frá London er nú í heimsókn hér á landi og heldur tónleika í Langholtskirkju í dag, laugardag klukkan 18:00.

„Leiðari breska hópsins er Jillian Leddra, frá Nýja Sjálandi, en hún hefur áður farið nemendahóp sinn í utanlandsferðir, meðal annars til Cremona 2009 og Valencia 2011,“ segir Kristinn Örn Kristinsson, skólastjóri Allegro Suzukitónlistarskólans. Hópurinn frá Bayswater Suzuki Group kemur einmitt fram með fiðlunemendum úr skólanum undir stjórn Lilju Hjaltadóttur. Koma hóparnir fram bæði í sitthvoru lagi og saman.

Aðspurður um efnisskrána segir Kristinn hana afar fjölbreytta.

„Á henni verður meðal annars Sverðdansinn eftir Khatchaturian, tvíleikskonsert fyrir selló eftir Vivaldi, 3. kafli úr fiðlukonsert Tchaikovskys og fyrsti kafli úr tvíleikskonsert eftir Bach, svo nokkuð sé nefnt. Tónleikarnir eru ókeypis og allir velkomnir,“ segir Kristinn glaður í bragði og ljóst er að mikil tilhlökkun ríkir innan beggja hópa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×