Golf

Allir sterkustu kylfingar landsins mættir

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ólafur Björn
Ólafur Björn Vísir/Getty
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu, þetta er eitt skemmtilegasta mót ársins,“ sagði Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum þegar Vísir heyrði í honum fyrir Íslandsmótið í höggleik sem hefst í dag.

Ólafur var ánægður með ástandið á vellinum miðað við þá erfiðleika sem vallarstarfsmenn lentu í á köflum í vetur.

„Þetta verður vonandi bara skemmtilegt mót. Þrátt fyrir að völlurinn sé svolítið blautur virðist hann vera í góðu standi og flatirnar líta vel út. Öll umgjörðin virðist vera frábær og ég á von á mjög skemmtilegu móti.“

„Flatirnar skipta mestu máli og þær eru frábærar. Það má alltaf reikna með einhverjum færslum út á velli enda eru blettir sem eru of blautir eftir veturinn.“

Allir helstu kylfingar landsins munu taka þátt í mótinu og Ólafur á von á erfiðri en spennandi keppni.

„Ég á ekki von á öðru en að þetta verði spennandi mót. Allir sterkustu kylfingar landsins eru mættir og ég trúi ekki öðru en að það verði spenna í þessu,“ sagði Ólafur.


Tengdar fréttir

Birgir Leifur hefur titilvörnina á heimavelli í dag

Birgir Leifur Hafþórsson og Sunna Víðisdóttir eiga von á skemmtilegu Íslandsmóti um helgina þar sem þau fá tækifæri á því að endurheimta titilinn Íslandsmeistari í höggleik.

Hættur að velta mér upp úr þessu

Kristján Þór Einarsson var nokkuð brattur á blaðamannafundi fyrir Íslandsmótið í höggleik sem fer fram á GKG um helgina. Hann er hættur að velta sér upp úr vali Úlfars Jónssonar á landsliðinu og ætlar að einblína á að sigra á Eimskipsmótaröðinni í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×