Viðskipti innlent

Allir skulu sitja við sama borð

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka Iðnaðarins.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka Iðnaðarins.
„Ég er bara talskona frjálsra viðskipta og fagna öllum sem vilja hefja rekstur á Íslandi. Þrátt fyrir það verðum við sem viljum eiga í viðskiptum innanlands að starfa innan íslenskra laga og reglna,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka Iðnaðarins, í samtali við Vísi.

Í fréttum í gær var sagt frá því að smásölurisinn Costco hafi áhuga á að opna verslun hér á landi og hefur félagið þegar óskað eftir lóð í Grafarvogi og Garðabæ í þessu skyni.

Costco er fjórða stærsta smásölukeðja heims með rúmlega 650 verslanir í tíu löndum þar á meðal í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Japan.

Hafa forráðamenn fyrirtækisins farið fram á hinar ýmsu undanþágur frá íslenskum lögum svo að þeir geti hafi hér rekstur. Til að mynda hafa þeir farið þess á leit við íslensk stjórnvöld að fá að selja í verslunum sínum léttvín, lausasölulyf og ferska erlenda kjötvöru og hefur Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra tekið hugmyndum þeirra með opnum hug.

Guðrún segir að í ljósi sögunnar verði að teljast ólíklegt að viðskiptaumhverfinu verði umturnað hérlendis, „vegna þess að einhver verslunarkeðja í Bandaríkjunum vill koma hingað. Íslensk verslun hefur barist fyrir þessum breytingum í mörg ár, mörg ár og ef það er svona mikill vilji til að breyta lögunum af hverju hefur þá ekki verið gert fyrir íslenska verslun? Mér finnst þetta skjóta skökku við,“ segir Guðrún.

Hún bætir við að þar fyrir utan hefur Costco aðlagað sig að mismunandi viðskiptaumhverfum í þeim löndum sem smásölurisinn hefur hafið rekstur. „Eins og í Kanada fær verslunin ekki að selja áfengi og lausasölulyf, rétt eins og í fjölmörgum fylkjum Bandaríkjanna sem hafa mismunandi lög og reglur í þessum efnum.“

Það megi þó ekki skilja það sem svo að Guðrún sé mótfallin hugmyndum bandaríska smásölurisans um sölu á fyrrgreindum vörum í matvörubúðum hérlendis. Hún hafi til að mynda aldrei skilið af hverju Íslendingar geti ekki keypt bjór og léttvín í matvöruverslunum. „Við getum hins vegar ekki farið að kollvarpa því umhverfi sem við höfum starfað og búið í fjölmörg ár með jafn miklu offorsi og mér sýnist umræða síðustu daga bera með sér. Við erum að tala um að þetta kallar meðal annars á endurskoðun landbúnarkerfisins í heild sinni og ef við ætlum að fara í svo umfangsmiklar breytingar þá verðum við að gera það í góðu samráði við hlutaðeigandi aðila.“

Guðrún undirstrikar að hún vilji að allir sitji við sama borð þegar kemur rekstri verlsana hérlendis. „Og umfram allt erum við að berjast um sanngjarnt samkeppnisumhverfi,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka Iðnaðarins.


Tengdar fréttir

Costco skrefinu nær með orkusöluleyfi

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkir orkusölu Costco með skilyrðum. Samtök verslunar og þjónustu fagna því ef frjálsræði eykst í verslun með innflutningi á kjöti og áfengissölu í verslunum.

Fagna grundvallabreytingu stjórnvalda

Hagar fagna yfirlýsingu iðnaðar- og viðskiptaráðherra um breytingu á stefnu stjórnvalda í málum sem snúa að viðskiptafrelsi með sjálfsagðar neysluvörur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×