Heilsa

Allir með í Meistaramánuði

Rikka skrifar
Meistarmánuður hefst formlega á miðvikudaginn næstkomandi en átakið gengur út á að hver og einn setji sér markmið sem viðkomandi ætlar sér að framfylgja út mánuðinn.

Markmiðin geta verið eins misjöfn og þau eru mörg, þau geta snúið að mataræði, hreyfingu og bættu lífsmunstri. Einnig geta þau snúist um að rækta betur samböndin við sína nánustu, lifa meira í núinu, minnka farsímanotkun, temja sér jákvæðara hugarfar eða hvað sem er sem að lætur okkur verða aðeins betri útgáfa að okkur sjálfum. Allir geta orðið meistarar í október og hver setur sér markmið á sínum forsendum.

Á morgun þriðjudag hefst þáttaröð um Meistaramánuð á Stöð 2.

Birta Björnsdóttir hefur að undanförnu sankað að sér hvetjandi og skemmtilegu efni sem tengist meistaramánuðinum á einhvern hátt.

Í þættinum verður meðal annars fylgst með verðandi meisturum og þeirra markmiðum sem eru af ýmsum toga.

Þátturinn verður á dagskrá á þriðjudagskvöldum í október klukkan 19.20 í opinni dagskrá.

Skráðu þig í Meistaramánuð hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×