Lífið

Allir kátir á Klambratúni

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Það verður alls konar við að vera á Klambratúni í dag. Hér má sjá skipuleggjendur hátíðarinnar, þær Valdísi og Jónu ásamt börnum sínum.
Það verður alls konar við að vera á Klambratúni í dag. Hér má sjá skipuleggjendur hátíðarinnar, þær Valdísi og Jónu ásamt börnum sínum. Vísir/Eyþór
Á morgun verður heldur betur stuð og stemning á Klambratúni þegar barnahátíðin Kátt á Klambra fer fram en sannkölluð karnival stemning mun ríkja og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir börn og fullorðna.

„Hugmyndin kviknaði á tónlistarhátíðinni Secret Solstice árið 2015. Á sunnudeginum var sól, reggí- og íslenskar hiphop hljómsveitir. Ég fór með litlu stelpuna mína sem var ekki orðin tveggja ára og hún skemmti sér konunglega. Ég hitti vini mína sem voru með börnin sín líka og það myndaðist einhver svona fjölskyldustemning ef ekki hefði verið fyrir áfengið og sígaretturnar,“ segir Jóna Elísabet Ottesen sem skipuleggur hátíðina ásamt Valdísi Helgu Þorgeirsdóttur.

Jóna segir undirbúninginn hafa gengið stórvel og þær Valdís fundið fyrir því að stemning væri fyrir hátíð á borð við þessa, þar sem öll fjölskyldan gæti skemmt sér saman og fundið eitthvað við sitt hæfi.

„Ég fór líka að hugsa um þessi grænu svæði sem eru í borginni og hvað það væri oft hægt að nýta þau betur. Og einmitt þessi hugmynd að barnaskemmtanir þurfi ekki alltaf að vera þannig að íþróttaálfurinn mæti, hoppukastalar, ís og einhver tryllingur heldur að það sé líka hátíð þar sem foreldrarnir geta notið sín saman, hitt aðra foreldra og börnin þeirra þannig að þetta snúist ekki bara um að troða ís í börnin, hoppa aðeins og fara svo heim,“ segir Jóna en fjölbreytt dagskrá verður á morgun.

Meðal þess sem í boði verður á morgun er barnajóga, hiphop danssýning, barnadiskó, Frikki Dór og barnadiskó. Auk skemmtidagskráarinnar verða ýmsar uppákomur á svæðinu. Til dæmis húllafjör, tattúbás, tombólumarkaður, sögustund og listasmiðjur á Kjarvalsstöðum. Þeir sem verða svangir geta keypt ýmsar veitingar á svæðinu.

Dagskráin hefst klukkan 14.00 og stendur til klukkan 17.00. Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Kátt á Klambra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×