Skoðun

Allir hagnast

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Á dögunum steig Reykjavíkurborg mikilvægt skref til móts við framtíðina þegar samþykkt var að bjóða starfsmönnum borgarinnar að gera samgöngusamninga. Á áttunda þúsund kvenna og manna starfa hjá Reykjavíkurborg á fjölmörgum starfsstöðum og því er ljóst að ákvörðunin mun snerta marga með beinum eða óbeinum hætti. Markmiðið með samningunum er að auka hlutfall starfsmanna sem nýta vistvænar samgöngur vegna ferða til og frá vinnu eða vegna vinnutengdra ferða. Greiðslur vegna samninganna munu nema 72 þúsund kr. á ári fyrir starfsfólk í 50-100% starfi og 36 þúsund kr. á ári fyrir fólk í 33%-49% starfshlutfalli. Frá og með 1. september nk. geta yfir sjö þúsund starfsmenn gert slíka samninga. Styrknum er ætlað að standa undir kostnaði vegna t.d. fargjalda með strætó, fatnaðar, reiðhjóls eða annars kostnaðar vegna vistvæns ferðamáta.

Hjá Reykjavíkurborg starfar öflugt starfsfólk sem heldur úti ólíkri starfsemi og þjónustu við borgarbúa og aðra þá sem heimsækja borgina gangandi. Starfsfólkið er almennt ánægt og það er sérstakt fagnaðarefni að í nýrri viðhorfskönnun meðal starfsmanna eykst starfsánægja milli ára. Reykjavíkurborg á að gera vel við starfsfólk sitt og nú þegar stendur því til boða að sækja sundlaugarnar og bókasöfnin frítt. Samgöngusamningarnir eru nýr liður í góðri starfsmannastefnu sem skiptir ekki síður máli enda um verulega búbót að ræða fyrir þá sem taka þátt. Fyrir utan þá staðreynd að aukin hreyfing stuðlar að bættri heilsu.

Samningarnir eru hins vegar ekki bara starfsmanna- og lýðheilsumál því þeir eru ekki síður umhverfis- og loftslagsmál. Markmið með gerð þeirra er að létta á álagstímum í umferðinni, draga úr mengun og útblæstri og auka notkun almenningssamgangna. Þegar horft er til kolsefnislosunar án losunar frá virkjunum sést að helmingurinn kemur frá úrgangi og hinn frá samgöngum. Samningarnir tóna því vel við loftslagsstefnu Reykjavíkurborgar og gildandi aðalskipulag. Samkvæmt því er nú stefnt að því að að draga úr bílaumferð í Reykjavík úr 76% niður í 58% fyrir 2030 og auka á sama tíma hlutdeild annarra ferðamáta. Vonandi verður þessi ákvörðun til þess að fleiri sveitarfélög og fyrirtæki ákveði að stíga sambærileg skref. Allir munu græða á því.




Skoðun

Sjá meira


×