Viðskipti innlent

Allianz ekki tilkynnt um breytingar á reglum um gjaldeyrishöft

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Höfuðstöðvar Allianz í Þýskalandi.
Höfuðstöðvar Allianz í Þýskalandi. Vísir/AFP
Tryggingarfélaginu Allianz komu fréttir um að Seðlabanki Íslands hyggist setja nýjar reglur, sem fela það í sér að greiðslur iðgjalda til erlendra tryggingafélaga verði ekki lengur heimilar, í opna skjöldu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Þrjátíu þúsund Íslendingar sem hafa safnað sparnaði erlendis gegnum umboðsmenn erlendra tryggingafélaga hér á landi eftir að höftum var komið á, þurfa að hætta því og færa sparnaðinn í krónur. Allianz er miðlari fyrir erlent tryggingafyrirtæki og býður upp á sparnaðar- og tryggingarleiðir þar sem iðgjaldagreiðslum er varið til söfnunar höfuðstóls í erlendum gjaldeyri. Ljóst er því að breytingarnar setja starfsemi félagsins úr skorðum.



Allianz segir félaginu ekki hafa verið tilkynnt neitt um fyrirhugaðar breytingar. Enginn frá Seðlabankanum hefur sett sig í samband við félagið. Allianz hyggst óska eftir fundi með Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu til þess að fara yfir nýja túlkun á reglum um gjaldeyrishöft með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×