Viðskipti innlent

Allar tólf gerðir iPad prófaðar í einu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Allar 12 gerðir iPadsins.
Allar 12 gerðir iPadsins. Mynd/Skjáskot
Þróun tækninnar fleygir fram á ógnarhraða. Á hverju ári koma út nýjir og betri örgjörvar fyrir snjalltæki sem gera það að verkum að snjalltæki síðasta árs virðast löturhæg í samanburði við þau nýjustu.

Stjórnendur YouTube-rásarinnar EverythingApplePro ákvaðu að sjá hvernig það myndi koma út ef þeir myndu prófa allar þær gerðir af iPad spjaldtölvum Apple sem komið hafa út. Í einu. Allt frá fyrstu gerð iPadsins sem kom út árið 2010 til þeirra nýjustu sem kom út á þessu ári, alls 12 talsins.

Alls eru iPadarnir tólf bornir saman í mismunandi prófunum, allt frá hraða til krafts. Sumar niðurstöðurnar koma nokkuð á óvart.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×