Innlent

Allar áætlanir þingsins gera ráð fyrir kosningum í haust

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, ritaði flokksfélögum bréf í gær þar sem hann færir rök fyrir því að ekki þurfi að kjósa í haust líkt og forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar lofuðu í kjölfar Panamalekans.

Hann segir að ríkisstjórnin þurfi enn að klára mikilvæg mál áður en boðað verði til kosninga.

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, segir hinsvegar að stjórn og stjórnarandstaða hafi þegar náð saman um vinnuáætlun þingsins og að boðað verði til kosninga í haust.

„Við bjuggum til nýja starfsáætlun núna á vormánuðum þar sem er gert ráð fyrir því að þingið starfi núna í ágúst og fram í september. Við skipulag þingsins miðast allt við það.“

Einar segir Sigmund ekki hafa haft samband við sig vegna hugmynda um kosningar í haust.

„Í sjálfu sér er ekkert tilefni til þess finnst mér,“ segir hann. „Þessi starfsáætlun var unnin af forsætisnefnd Alþingis í samráði við forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, forsætisráðherra og fjármálaráðherra, og tímaramminn sem við settum okkur miðaðist við þennan tíma. Þinghaldið hefst á nefndarfundum um miðjan ágúst, síðan hefjast þingfundir og þá geri ég ráð fyrir að þau mál sem liggja fyrir í nefndunum og ætlunin er að klára verði tilbúin þannig að við getum hafið þingstörf af fullum krafti. Ríkisstjórin hefur svo boðað nokkur mál sem ráðherrarnir leggja áherslu á að verði kláruð á þessum tíma.“

Hann telur að sú starfsáætlun sem þingið hafi sett sér dugi til að ljúka þessum málum fyrir kosningar í haust.

„Það er auðvitað háð því að það verði gott andrúmsloft í þinginu og að menn séu tilbúnir til að vinna saman og ég hef enga ástæðu til að ætla að það verði ekki þannig. Við áttum þétt og gott samstarf, annarsvegar af minni hálfu sem forseta þingsins og svo fulltrúar bæði stjórnar og stjórnarandstöðu sem að gerði það að verkum að þingstörfin á síðastliðnu vori gengu vel og greiðlega fyrir sig og þetta var vinnusamt vor,“ segir Einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×