Fótbolti

Alkmaar skaust í fjórða sætið

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron Jó gat fagnað með samherjum sínum í dag.
Aron Jó gat fagnað með samherjum sínum í dag. vísir/getty
Aron Jóhannsson spilaði allan leikinn í 3-1 sigri AZ Alkmaar gegn ADO Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Nemanja Gudelj kom AZ yfir, en Wilson Eduardo jafnaði metin eftir 55. mínútna leik.

Derrick Luckassen kom AZ aftur yfir og Nemanja Gudelj skoraði svo annað mark sitt og þriðja mark AZ á 65. mínútu. Lokatölur 3-1.

AZ fer með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar, en liðið getur enn tryggt sér beint sæti í Evrópudeildinni. Þrír leikir eru eftir af tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×