Lífið

Alicia Keys er ófrísk

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Alicia Keys er komin í hjónasælu með annað barn á leiðinni.
Alicia Keys er komin í hjónasælu með annað barn á leiðinni.
Alicia Keys, söngkona, og eiginmaður hennar Swizz Beats eiga von á öðru barni sínu. Fyrir eiga þau Egypt sem er þriggja ára.

Hjónin áttu í dag fjögurra ára brúðkaupsafmæli og völdu dagsetninguna af því tilefni fyrir þessa gleðilegu tilkynningu. Alicia setti mynd inn á Instagram fyrr í dag þar sem hún sést faðma sístækkandi magann og skrifaði undir: „Gleðilegt brúðkaupsafmæli ástin mín @therealswizzz. Og til þess að gera gleðina enn meiri þá eigum við von á öðrum engli. Þú gerir mig hamingjusamari en ég hef nokkurn tímann áður verið. Skál fyrir mörgum fleiri árum af besta hluta lífsins.“

Eiginmaður hennar sem er hálf fertugur framleiðandi og á tvö börn úr fyrri samböndum setti sjálfur inn mynd þar sem hann deilir spennu hennar yfir viðbótinni við fjölskylduna.

Hvenær söngkonan, sem gerði garðinn fyrst frægan með laginu „Fallin‘“, á von á sér er ekki víst en í nóvember á síðasta ári sagði hún alls ekki ólíklegt að annað barn væri í spilunum fyrir þau skötuhjúin.  

Hér að neðan má sjá Instagram mynd Aliciu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×