Innlent

Algjört frost í kjaraviðræðum BHM og ríkisins

Kjartan Hreinn Njálsson og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa
Allt stefnir í að gerðardómur ákveði laun rúmlega 11 þúsund félagsmanna BHM. Síðasti samningafundur í kjaradeilunni var árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM, segir ólíklegt að sáttasemjari boði til fundar fyrir mánaðamót.

„Það væri þá aðeins ef að samninganefnd ríkisins kæmi að borðinu með nýtt tilboð,“ segir Þórunn.

Með lögum á verkfallsaðgerðir félagsmanna BHM verður kjaradeilunni vísað í gerðardóm þann 1. júlí næstkomandi. Þannig er útlit fyrir að Hæstiréttur skipi þrjá einstaklinga í gerðardóm og þeir munu ákveða kjör félagsmanna BHM.

„Dómurinn ákveður laun félaga í BHM fyrir 15. ágúst en á það ber að líta að við höfum stefnt ríkinu vegna lagasetningarinnar og ætlum að reyna að hnekkja henni.“

Málið fékk flýtimeðferð fyrir héraðsdómi og hefur þegar verið þingfest. Málflutningur fer fram í byrjun næstu viku.

„Í rauninni er búið að setja gerðardómi fyrir við hvað eigi að miða og hvernig eigi að setja niður laun félaga í BHM þannig að það má svo sem segja að hljóðið í okkar fólki sé jafnslæmt og það var þá. Það er ljóst að annar samningsaðilinn setti þessi lög til þess að reyna að lögleiða sitt tilboð, við sjáum ekki betur.“

Hún segir BHM hafa reynt að leiða ríkinu það fyrir sjónir að það og félagsmenn BHM hafi sameiginlega hagsmuni af því að meta menntun til launa, greiða fólki mannsæmandi laun og halda háskólamenntuðum í starfi á Íslandi.

„En svo virðist sem að ríkið meti það með öðrum hætti.“


Tengdar fréttir

Segir forsendur fyrir dómi gerðardóms vera brostnar

Formaður Félags hjúkrunarfræðinga segir þungt hljóð í félagsmönnum. Telur að komið hafi verið í veg fyrir að laun hjúkrunarfræðinga verði ákveðin með dómi. Samningurinn hefur engin áhrif á deilu BHM við ríkið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×