Fótbolti

Alfreð spilaði ekki í tapi Sociedad

Socidad tapaði á heimavelli fyrir Almeria.
Socidad tapaði á heimavelli fyrir Almeria. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason kom ekki við sögu í tapi Real Sociedad gegn Almeria á heimavelli í spænska boltanum í dag.

Almeria komst yfir eftir hálftíma leik þegar Alberto De La Bella varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark, en þannig stóðu leikar í hálfleik.

Sex mínútur voru liðnar af síðari hálfleik þegar annað markið kom og það skoruðu gestirnir. Mauro Dos Santos tvöfaldaði þá forystuna fyrir Almeria og staðan orðin vænleg fyrir þá.

Sebastian Dubarbier fékk hins vegar að líta tvö gul spjöld hjá gestunum og einum fleiri náðu Sociedad að minnka muninn, en þar var að verki Gonzalo Castro fimm mínútum fyrir leikslok.

Nær komust heimamenn í Real ekki og lokatölur, 1-2. Sociedad er eftir leikinn með fjögur stig eftir fjóra leiki, en Almeria er í níunda sæti með fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×