Sport

Alfreð skoraði | Ensku stórliðin unnu

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Alfreð á Spáni
Alfreð á Spáni mynd/twitter-síða Alfreðs
Arsenal, Liverpool og Chelsea unnu öll sigra í æfingaleikjum sínum fyrir komandi tímabil í dag og Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Real Sociedad sem tapaði fyrir Ajax í dag.

Það tók íslensku markamaskínuna Alfreð ekki nema tíu mínútur að skora fyrir nýja lið sitt gegn gamalkunnum andstæðingi.

Alfreð gekk sem kunnugt er til liðs við spænska liðið frá hollenska liðinu Heerenveen í sumar en hollensku meistararnir í Ajax unnu sigur í leiknum, 3-1.

John Terry tryggði Chelsea 3-2 sigur á Wimbledon í dag í leik þar sem Wimbledon var 2-0 yfir í hálfleik.

Terry minnkaði muninn á 74. mínútu og Mohamed Salah jafnaði metin sjö mínútum fyrir leikslok. Það var svo Terry sjálfur sem tryggði Chelsea sigurinn með marki í uppbótartíma.

Liverpool lenti einnig í vandræðum í dag. Josh Brownhill kom Preston North End í 1-0 rétt fyrir hálfleik en Suso og Kristoffer Peterson skoruðu tvö mörk á þremur mínútum um stundarfjórðungi fyrir leikslok og tryggðu Liverpool fyrsta sigur sinn á undirbúningstímabilinu.

Þjóðverjinn Emre Can sem gekk til liðs við Liverpool í sumar frá Bayer Leverkusen fyrir 12 milljónir evra fór meiddur af velli en óvíst er hversu alvarleg þau meiðsli eru.

Að lokum vann Arsenal 2-0 sigur á Boreham Wood. Kristoffer Olsson kom Arsenal yfir á 68. mínútu og Miquel gerði út um leikinn á 86. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×