Fótbolti

Alfreð orðinn spænskumælandi | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Alfreð er orðinn góður í spænskunni.
Alfreð er orðinn góður í spænskunni. Twitter-síða Alfreðs
Íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason svaraði spurningum blaðamanna á spænsku fyrir leik Real Sociedad og Almería um helgina. Það verður að teljast vel af sér vikið, en Alfreð hefur aðeins búið í um tvo mánuði á Spáni.

Framherjinn gæti leikið sinn fyrsta deildarleik fyrir Sociedad gegn Almería, en hann hefur verið frá keppni á undanförnum vikum vegna axlarmeiðsla. Alfreð gekk til liðs við Sociedad frá Heerenveen í sumar, en hann varð markakóngur í Hollandi á síðasta tímabili.

Myndband af blaðamannafundinum má sjá hér fyrir neðan.

Alfreð var einnig sleipur í hollenskunni eins og sjá má í þessu myndbandi:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×