Fótbolti

Alfreð ónotaður varamaður í sigri Real Sociedad

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
David Moyes stýrði Real Sociedad til sigurs gegn Eibar í kvöld.
David Moyes stýrði Real Sociedad til sigurs gegn Eibar í kvöld. vísir/getty
Xabi Prieto tryggði Real Sociedad sigur á nýliðum Eibar í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Prieto skoraði eina mark leiksins á 56. mínútu þegar hann skallaði hornspyrnu Pardos í netið. Þetta var fyrsta mark Prietos í deildinni í vetur en hann er fyrirliði Sociedad-liðsins.

Með sigrinum komst Sociedad upp í 11. sæti deildarinnar en liðið er með 22 stig eftir 20 leiki.

Alfreð Finnbogason sat allan tímann á varamannabekknum hjá Sociedad en hann hefur ekki fengið tækifæri í byrjunarliðinu í deildarleik frá því keppni hófst aftur á nýju ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×