Fótbolti

Alfreð leikmaður mánaðarins

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason skorar á móti Dortmund.
Alfreð Finnbogason skorar á móti Dortmund. vísir/getty
StadtZeitung, staðarblað í Augsburg í Þýskalandi, valdi Alfreð Finnbogason leikmann mánaðarins hjá Augsburg í þýsku 1. deildinni en frá þessu greinir blaðið í morgun.

Alfreð, sem gekk í raðir Augsburg eftir stutta dvöl  hjá Olympiacos í Grikklandi, skoraði tvö mörk og lagði upp önnur tvö fyrir Augsburg í mars mánuði, en liðið er í baráttu í neðri hluta deildarinnar.

Augsburg gerði tvö jafntefli og tapaði tveimur leikjum í mars og innbyrti því tvö stig en Alfreð átti stóran þátt í þessum stigum sem liðið halaði inn.

„Loksins virðist Augsburg vera komið mann sem veldur usla í teignum. Íslendingurinn hleypur gríðarlega mikið, leggur mikið á sig og er mættur í teiginn til að klára færin,“ segir í umsögn um íslenska landsliðsmanninn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×