Fótbolti

Alfreð lagði upp sigurmarkið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð hefur farið á kostum í upphafi tímabilsins.
Alfreð hefur farið á kostum í upphafi tímabilsins. vísir/getty
Þýska liðið Augsburg vann frábæran sigur á RB Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Michael Gregoritsch skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu eftir laglegan undirbúning frá Alfreð Finnbogasyni.

Augsburg er þar með komið í tíu stig eftir fimm leiki og er í hópi efstu liða deildarinnar. Frábær byrjun á tímabilinu hjá Augsburg.

Önnur úrslit:

Schalke-Bayern  0-3

Wolfsburg - Werder Bremen  1-1

Gladbach-Stuttgart  2-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×