Fótbolti

Alfreð kynntur til leiks hjá Sociedad | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason. Mynd/Twitter-síða Alfreðs
Vani er á því á Spáni að nýjir leikmenn séu kynntir fyrir framan stuðningsmenn og varð engin undantekning á því þegar Alfreð Finnbogason var kynntur sem leikmaður Real Sociedad á Anoeta vellinum í San Sebastian á dögunum.

Alfreð var kynntur á sama tíma og Carlos Vela var kynntur sem leikmaður Real Sociedad en félagið keypti endanleg réttindi hans af Arsenal á dögunum. Var Vela fyrst kynntur til leiks áður en Alfreð var kynntur sem leikmaður Real Sociedad.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan en Alfreð og Vela afhenda ýmsan varning til stuðningsmanna Real Sociedad í lokin. Alfreð er kynntur til leiks eftir rúmlega eina og hálfa mínútu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×