Fótbolti

Alfreð í þýsku sjónvarpsviðtali: Við erum allir vinir í landsliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason skoraði sitt annað mark í þýsku Bundesligunni um helgina þegar hann tryggði Augsburg 2-2 jafntefli á útivelli á móti Darmstadt 98.

Alfreð kom til Augsburg á láni frá spænska liðinu Real Sociedad sem hafði áður lánað hann til gríska félagsins Olympiakos. Alfreð hefur ekki náð sér nógu vel á strik síðustu tímabil eftir að hafa orðið markakóngur hollensku deildarinnar 2013-14. Það er því flott fyrir hann að vera þegar búinn að skora tvö mörk fyrir Augsburg-liðið.

Alfreð var tekinn í viðtal í Kick Off fótboltaþættinum á DW-sjónvarpsstöðinni  í gær og þar var hann að sjálfsögðu spurður út í ævintýri íslenska fótboltalandsliðsins sem er á leiðinni á sitt fyrsta stórmót í sumar.

„Það eru að ég held níu leikmenn í landsliðnu í dag sem voru með 21 árs landsliðinu á EM í Danmörku 2011. Við höfum því verið að spila saman í átta til tíu ár og þekkjum hvern annan mjög vel. Við spilum vel saman sem ein heild og við eru líka allir vinir fyrir utan völlinn," sagði Alfreð í viðtalinu.

„Við erum því með hóp leikmanna sem eru að spila á mörgum stöðum, í efstu deild á Íslandi, í ensku b-deildinni, í ensku úrvalsdeildinni svo eitthvað sé talið. Sumir spila í Meistaradeildinni en saman mynda þessir leikmenn sérstakan hóp manna," sagði Alfreð.

Alfreð talað um það í viðtalinu að Eiður Smári Guðjohnsen hafi verið fyrirmynd margra íslenskra fótboltamanna og hann sé engin undantekning.  

„Eiður Guðjohnsen var mikil hetja í augum yngri leikmanna þegar þeir voru að alast upp því við sáum íslenskan leikmann spila með besta liði ensku úrvalsdeildarinnar. Það er ekki hægt að komast hærra en að vinna Meistaradeildina með Barcelona. Það er eitthvað sem verður erfitt fyrir íslenskan fótboltamann að leika eftir," sagði Alfreð.

Alfreð hefur á undanförnum árum spilað á Íslandi, í Belgíu, í Svíþjóð, í Hollandi á Spáni og í Grikklandi. Þýskaland er því sjöunda landið hjá þessum 27 ára leikmanni.

„Ég er mjög ánægður með að fá tækifæri til að spila í Bundesligunni sem er ein af þremur bestu deildum í heimi. Það eru fullt á öllum völlum, hraðinn er mikill og ég kann mjög vel við leikstílinn," sagði Alfreð.

Það er hægt að sjá mark Alfreðs í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Alfreð á stall með Eiði Smára

Landsliðsframherjinn jafnaði met Eiðs Smára Guðjohnsen með sínu fyrsta marki fyrir Augsburg í Þýskalandi.

Alfreð er undantekning

Pistlahöfundur Kicker ánægður með innkomu Alfreðs Finnbogasonar í þýska boltann.

Alfreð: Mótlætið hefur styrkt mig

Alfreð Finnbogason er kominn til sjötta félagsins á atvinnumannsferlinum. Hann segist þurfa á stöðugleika að halda á ferlinum og getur vel hugsað sér að spila næstu árin með Augsburg í Þýskalandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×