Fótbolti

Alfreð í fyrsta skipti í byrjunarliðinu og Augsburg vann

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alfreð fagnar sigurmarki Augsburg, en hann er hér fyrir miðri mynd.
Alfreð fagnar sigurmarki Augsburg, en hann er hér fyrir miðri mynd. vísir/getty
Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg sem vann góðan sigur á Hannover 96 í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, 1-0.

Eina mark leiksins kom á fjórtándu mínútu leiksins, en þá skoraði Ja-Cheol Koo eftir undirbúning Caiuby. Fleiri urðu mörkin ekki og lokatölur 1-0.

Alfreð var í byrjunarliðinu í fyrsta skipti síðan hann gekk í raðir liðsins frá Olympiakos, en hann var tekinn af velli á 82. mínútu.

Augsburg situr í þrettánda sæti deildarinnar með 24 stig. Hannover er á botninum með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×